Medial ehf. er lögmannsstofa með aðsetur á 2. hæð að Litlubrú 1, 780 Höfn. Á stofunni er veitt öll almenn lögfræðiþjónusta með fagmennsku, heiðarleika og persónulega þjónustu að leiðarljósi.
Fyrirtækið var stofnað í Reykjavík 1. ágúst 2015 með það að meginmarkmiði að starfa í málefnum tengdum heilbrigðisrétti, enda er mikil sérþekking á þeim málaflokki innan fyrirtækisins og hefur eitt af aðalviðfangsefnum stofunnar verið mat á líkamstjóni allt frá stofnun hennar. Í byrjun árs 2016 flutti fyrirtækið á Hornafjörð og hefur verið með starfsstöð þar síðan þá. Frá því á haustmánuðum 2018 hefur fyrirtækið tekið að sér alla almenna lögmannsþjónustu auk þess sem við bættist sala fasteigna í byrjun árs 2019.
Opið er frá kl. 10:00 - 15:00 alla virka daga. Hægt er að hringja í síma 477 1222 á opnunartíma og panta tíma, með því að hafa samband hér á heimasíðunni, senda tölvupóst á jona@medial.is eða koma við á stofunni á opnunartíma. Velkomið er að fá tíma utan hefðbundins opnunartíma þegar hægt er að koma því við.